Hoppa yfir valmynd
27. júní 2025 Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skýrsla starfshóps: Mikill ávinningur af gjaldfrjálsum skólamáltíðum

Foreldrar, skólastjórnendur og sveitarfélög sjá mikinn ávinning af gjaldfrjálsum skólamáltíðum í grunnskólum landsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps sem innviðaráðherra skipaði til að leggja mat á nýtingu og áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða. Skýrsla starfshópsins var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Það er mat starfshópsins að vel hafi tekist til á fyrsta skólaári eftir að skólamáltíðir í grunnskólum urðu gjaldfrjálsar. Ávinningurinn væri skýr fyrir grunnskólabörn en svara þurfi nokkrum spurningum varðandi verkefnið til framtíðar. 

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir voru liður í aðgerðum stjórnvalda árið 2024 til að styðja við gerð langtímakjarasamninga á vinnumarkaði og leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks. Alþingi samþykkti í fyrra að heimila Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða sveitarfélögum sem bjóða upp á skólamáltíðir framlög á árunum 2024-2027. 

„Það er ákaflega mikilvægt að hlúa vel að börnum í grunnskólum landsins með því að gefa öllum kost á næringarríkum skólamáltíðum. Þetta tryggir jafnræði og eflir lýðheilsu. Mikilvægt er að þróa þetta verkefni áfram þannig að það nýtist samfélaginu og börnunum okkar sem best,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

„Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru mikilvægar til að auka jöfnuð og draga úr fátækt meðal barna. Nú er jafnframt frumvarp til laga um námsgögn til meðferðar á Alþingi sem miðar m.a. að því að gera námsgögn gjaldfrjáls í áföngum fram að 18 ára aldri. Öll börn eiga að standa jafnfætis öðrum þegar kemur að menntun næstu kynslóða,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Helstu niðurstöður

Starfshópurinn vann þrjár spurningakannanir til að meta reynslu af gjaldfrjálsum skólamáltíðum og kalla eftir ábendingum. Ein var lögð fyrir sveitarfélög, önnur fyrir stjórnendur grunnskóla og sú þriðja fyrir foreldra/forráðafólk barna í grunnskóla. Foreldrakönnunin var gerð á íslensku, ensku og pólsku.

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna ánægð með verkefnið. Alls kváðust 81% vera mjög eða nokkuð jákvæð með verkefnið en aðeins 7% lýstu sig nokkuð eða mjög neikvæð gagnvart því.

Í skýrslunni segir að skólastjórnendur sjái mikinn ávinning af verkefninu og lýsi litlum eða engum áskorunum, en þar sem þær eru nefndar snúast þær einkum um áhyggjur af matarsóun og fjármögnun.

Sveitarfélög sjá einnig ávinning af gjaldfrjálsum skólamáltíðum sem felist í því að öllum börnum eru tryggðar skólamáltíðir óháð efnahag og fleiri börn nýti máltíðirnar. Ávinningurinn væri þó ekki án áskorana þar sem kostnaður hafi aukist hjá meirihluta sveitarfélaga, s.s. vegna fjölgunar nemenda sem nýti skólamáltíðir, mótframlag ríkisins nemi einungis hluta af heildarkostnaði, auk þess sem verð á matvöru fari hækkandi.

Loks kemur fram í skýrslunni að skráning barna í skólamáltíðir hefur aukist í öllum bekkjum eftir að þær urðu gjaldfrjálsar, mest í eldri bekkjum þar sem þátttaka var minni fyrir.

Sex ábendingar settar fram

Starfshópurinn setur fram sex ábendingar til stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga. Unnið verður úr þeim ábendingum á vettvangi ríkis og sveitarfélaga.

  • Rannsaka þarf matarsóun og gera íhlutanir til að minnka hana.
  • Hafa þarf eftirlit með gæðum máltíða og næringarinnihaldi.
  • Tryggja þarf fjármagn fyrir gæðaríkri skólamáltíð.
  • Tryggja þarf að til staðar séu upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað.
  • Skýra þarf hvort gjaldfrjálsar skólamáltíðir eigi eingöngu við um hádegisverð eða alla málsverði á skólatíma.
  • Taka þarf ákvörðun um framhald verkefnisins þegar því lýkur árið 2027.

Um starfshópinn

Innviðaráðherra skipaði starfshópinn í janúar sl. til að leggja mat á nýtingu og áhrif framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða. Starfshópurinn var þannig skipaður:

  • Jóhanna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri í innviðaráðuneytinu, fulltrúi innviðaráðherra og formaður starfshópsins
  • Þór Hauksson Reykdal, verkefnastjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu, fulltrúi mennta- og barnamálaráðherra
  • Ellen Alma Tryggvadóttir, doktor í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Helgi Aðalsteinsson, rekstrarhagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Skýrslan

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta