Skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni: 67 ný rými bætast við á árinu 2027
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins við Sóltún í Reykjavík. Með henni voru Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns og þær Aníta Eir Vilmarsdóttir og Jóný Helgadóttir, dætur starfsmanna á Sóltúni. Um er að ræða enn eitt skrefið í áætlun ríkisstjórnarinnar um stóraukna uppbyggingu hjúkrunarheimila til að mæta brýnni þörf.
Stækkunin gerir ráð fyrir 67 nýjum hjúkrunarrýmum og eru verklok áætluð árið 2027. Hjúkrunarrými í Sóltúni verða þá alls orðin 159.
„Þið eruð svo sannarlega að leggja ykkar af mörkum til að við getum komið okkar fólki í skjól,“ sagði Inga Sæland við tilefnið. „Við ætlum að eyða biðlistum og við sjáum að uppbygging hjúkrunarrýma mun líka losa um flöskuhálsinn á Landspítala og víðar og gjörbreyta þannig stöðunni fyrir sjúkrahúsin okkar. Þetta er forgangsverkefni þessarar ríkisstjórnar, uppbygging á hjúkrunarrýmum.“
„Þetta er stórt og mikilvægt skref sem gerir okkur kleift að veita fleira eldra fólki þá umhyggju, virðingu og öryggi sem það á skilið. Við erum þakklát fyrir traustið sem ríkið sýnir okkur með því að fá að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu sem brýn þörf er á,“ segir Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns.
Málefni eldra fólks á oddinn
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma. Fjölmargir áfangar hafa náðst að undanförnu:
- Þann 19. mars síðastliðinn var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
- Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Nokkrum dögum síðar mundaði ráðherra sleggju við Nauthólsveg en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Undir lok maímánaðar var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.
- Sama dag fór ráðherra á Húsavík en þar hefur kyrrstaða nú verið rofin um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.
- Þann 16. júní síðastliðinn var samkomulagið frá því í mars sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög.
- Fyrir þremur dögum var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.
Inga Sæland og Halla Thorodsen, forstjóri Sóltúns.
Ánægðar með daginn!
Heilsað upp á hundinn hennar Höllu framkvæmdastjóra.
Inga og Halla ásamt Ingibjörgu Eyþórsdóttur, forstöðumanni hjúkrunar á Sóltúni og Sólvangi.