Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2025 Utanríkisráðuneytið

Kröfum Iceland hafnað fyrir dómi

Dómstóll Evrópusambandsins. - myndCourt of Justice of the European Union

Almennur dómstóll Evrópusambandsins (e. General Court) hefur fallist á niðurstöðu Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) íslenskum stjórnvöldum í vil varðandi vörumerkið ICELAND. Dómstóllinn hafnaði í dag kröfum Iceland Foods Ltd. um ógildingu á niðurstöðu EUIPO, sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning verslunarkeðjunnar á orðmerkinu ICELAND væri ógild í heild sinni. 

Niðurstaðan er staðfesting á því að Iceland Foods Ltd. getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu í Evrópusambandinu á vörum sínum og þjónustu. Málið varðar því grundvallarhagsmuni íslenskra fyrirtækja í utanríkisviðskiptum. 

„Við fögnum auðvitað afdráttarlausri niðurstöðu okkur í vil í þessu mikilvæga máli fyrir hagsmuni lands og þjóðar“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtækin okkar að geta vísað til upprunans, til hreinleikans og til sérstöðu okkar á alþjóðavettvangi. Það felast verðmæti í heiti landsins og við stöndum áfram vörð um þessa hagsmuni fyrir Ísland.“

Íslensk stjórnvöld, í samstarfi við Íslandsstofu, Samtök atvinnulífsins og Icelandic Trademark Holding ehf., hafa farið fyrir ógildingarkröfum Íslands á vettvangi Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) frá árinu 2016. Krafa íslenska ríkisins um ógildingu orðmerkisins og orð- og myndmerkisins ICELAND byggðist á því að vörumerkið uppfyllti ekki lagaskilyrði til að fást skráð sem vörumerki í Evrópusambandinu.

Árið 2019 féllst Evrópska hugverkastofan á allar kröfur íslenska ríkisins er hún komst að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning verslunarkeðjunnar Iceland Foods Ltd. á orðmerkinu ICELAND væri ógild í heild sinni. Áfrýjunarnefnd EUIPO staðfesti síðar þá niðurstöðu í öllum atriðum í desember 2022. 

Iceland Foods Ltd. vísaði í kjölfarið niðurstöðu EUIPO til dómstóls Evrópusambandsins til ógildingar. Íslensk stjórnvöld hafa ekki beina aðild að því máli, en skiluðu engu að síður skriflegum athugasemdum og tóku þátt í munnlegum málflutningi til stuðnings niðurstöðu EUIPO í ljósi augljósra hagsmuna af niðurstöðunni. Málsaðilar hafa áfrýjunarheimild, einungis að því er varðar túlkun lagaákvæða og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, innan tveggja mánaða frá niðurstöðu. 

Dómur varðandi orðmerki
Dómur varðandi orð- og myndmerki

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta