Hoppa yfir valmynd
3. maí 2018 Utanríkisráðuneytið

Tæplega hundrað milljónir til borgarasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna á árinu

Ákveðið hefur verið að veita allt að 93 milljónum króna til þróunarsamvinnuverkefna borgarasamtaka árið 2018, til viðbótar við gildandi skuldbindandi samninga ráðuneytisins við íslensk borgarasamtök um þróunarsamvinnu. Utanríkisráðuneytið minnir á að umsóknarfrestur um styrki fyrir þróunarsamvinnuverkefni íslenskra borgarasamtaka er til miðnættis 1. júní ár hvert. Umsóknir skal senda á netfangið [email protected].

Umsækjendur skulu tilgreina hvort að sótt sé um nýliðastyrk, vegna styttra þróunarsamvinnuverkefnis eða langtímaverkefnis. Einungis borgarasamtök sem sækja um styrki til þróunarsamvinnuverkefna í fyrsta sinn geta sótt um nýliðastyrk.

Við þessa styrkúthlutun verður farið eftir verklagsreglum ráðuneytisins um samstarf við borgarasamtök frá 2015. Í reglunum er að finna vinnulag og viðmið sem notuð eru við mat á umsóknum, auk skilyrða sem borgarasamtök verða að uppfylla til að teljast styrkhæf. Jafnframt er þar að finna upplýsingar um hvaða gögnum ber að skila með hverri umsókn.

Athygli er vakin á því að ráðuneytið fjallar ekki um umsóknir þeirra sem ekki hafa gert fullnægjandi skil vegna fyrri styrkja.

Við mat á umsóknum er m.a. litið til þess hvort að aðstoðin sem til stendur að veita sé óhlutdræg og byggist á þörfum haghafa inngripa hverju sinni. Jafnframt er lagt mat á það hvort að verkefni styðji við áherslur íslenskra stjórnvalda í þróunarsamvinnu og samrýmist stefnu stjórnvalda í samstarfsríkjum. Enn fremur er horft til þess hvort að verkefni hafi jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.

Ráðuneytið styrkir verkefni sem unnin eru í eigin nafni umsækjanda, verkefni sem unnin eru í samstarfi við samtök í samstarfslandi og til verkefna á vegum alþjóðlegra samtaka eða í samvinnu við önnur samtök.

Verklagsreglur utanríkisráðuneytisins byggjast m.a. á alþjóðlegri stefnu og starfsaðferðum við styrkveitingar úr opinberum sjóðum og stefnumiðum ráðuneytisins.

Einungis verður tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum er finna má á vef Stjórnarráðsins, en þar má einnig finna nánari upplýsingar um verklagsreglur, sem og aðrar hagnýtar upplýsingar.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

6. Hreint vatn og hreint
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum