Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Fyrirhuguð opnun neyslurýmis í Reykjavík á næsta ári

Opnun neyslurýmis fyrir langt leidda vímuefnaneytendur er fyrirhuguð í Reykjavík á næsta ári. Í frumvarpi til fjárlaga eru 50 milljónir króna áætlaðar til verkefnisins. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni eftir áramót til að tryggja verkefninu fullnægjandi lagastoð.

 

Heilbrigðisráðherra hóf vinnu fyrr á þessu ári við undirbúning að opnun neyslurýmis. Var það gert í samræmi við tillögur starfshóps um leiðir til að draga úr skaðlegum afleiðingum og margvíslegum hliðarverkunum vímuefnaneyslu þar sem einnig er horft til þess að vernda notendur þessara efna og standa vörð um félagsleg réttindi þeirra. Opnun neyslurýmis var ein af fleiri tillögum starfshópsins sem lagði til að könnuð yrði þörf fyrir uppsetningu slíkra rýma fyrir þá sem nota vímuefni og sprautubúnað. Markmiðið er að tryggja þessum einstaklingum öruggan vettvang, því eins og bent er á í skýrslu starfshópsins stunda þeir sem eiga við mestan vímuefnavanda að etja oft neyslu sína við hættulegar og heilsuspillandi aðstæður sem stuðla að auknum skaða fyrir viðkomandi, veikindum og jafnvel dauða.

 

Með opnun neyslurýmis verður þeim sem sprauta sig í æð tryggður aðgangur að hreinum sprautubúnaði, nálaskiptiþjónustu og gjaldfrjálsri grunnheilbrigðisþjónustu. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar mun taka þátt í þessu verkefni og Rauði krossinn á Íslandi hefur fallist á að sinna þjónustunni. Velferðarráðuneytið mun fela Sjúkratryggingum Íslands umboð til samningsgerða um opnun neyslurýmis í samræmi við lög um sjúkratryggingar.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum