Hoppa yfir valmynd
21. ágúst 2019

Réttindi Íslendinga sem eru búsettir í Bretlandi fyrir Brexit

Í tilefni frétta í breskum fjölmiðlum í vikunni um að frjáls för fólks kunni að stöðvast strax í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu vill sendiráð Íslands í London árétta að samkvæmt upplýsingum frá breska innanríkisráðuneytinu á það ekki við um EES- ríkisborgara sem flytja til Bretlands fyrir 31. október nk. Að sama skapi hafa bresk yfirvöld staðfest í fjölmiðlum að fréttir um að ríkisborgarar frá ríkjum innan EES þurfi að greiða fyrir þjónustu í breska heilbrigðiskerfinu (NHS) eftir Brexit eigi ekki við þá sem flytja til Bretlands fyrir 31. október á þessu ári.

Sendiherra Íslands í London, Stefán Haukur Jóhannesson, segir það sérstakt áhyggjuefni hversu fáir íslenskir ríkisborgar hafa sótt um svokallaðan Settled Status en hingað til hafa eingöngu borist um 200 umsóknir frá Íslendingum. „Við mælum eindregið með því að fólk sæki um sem allra fyrst þar sem óvissa ríkir enn um útfærslu á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þó að samningar hafi náðst við bresk stjórnvöld um réttindi borgara eftir Brexit þá þurfa allir sem hér dvelja og hyggjast gera svo áfram að hafa réttindi til búsetu, þ.e. settled status eða pre-settled status.“

Eftir sem áður er tímafrestur til að skila inn umsókn til 31. desember 2020 en Stefán Haukur segir sendiráðið vilja beina því til Íslendinga í Bretlandi að draga það ekki of lengi að sækja um. Þar sem farið er handvirkt yfir hverja umsókn sem berst má við því búast við afgreiðslutími lengist þegar nær dregur vegna aukins fjölda umsókna.

Allar upplýsingar varðandi umsóknarferlið má finna á vef breska innanríkisráðuneytisins


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum