Hoppa yfir valmynd
15. september 2021 Forsætisráðuneytið

Nýtt miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins

Forsætisráðuneytið hefur sett í loftið nýtt og uppfært miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins.

Ísland trónir efst á listum yfir árangur í kynjajafnréttismálum og hafa ýmsar aðgerðir stjórnvalda vakið alþjóðlega athygli á kynjajafnrétti hér á landi. Ísland hefur sterka rödd á alþjóðavettvangi þegar kemur að jafnréttismálum og er mikill áhugi innanlands og erlendis frá að fá upplýsingar um stöðu og þróun jafnréttismála á Íslandi.

Á vefsvæðinu er hægt að nálgast upplýsingar á einum stað um aðgerðir stjórnvalda í jafnréttismálum, ýmsa áfanga og útgefið efni auk þess sem þar er að finna kyngreinda tölfræði sem er hornsteinn að markvissu jafnréttisstarfi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra:

Á þessu kjörtímabili hefur verið unnið markvisst að því að styrkja stöðu jafnréttismála í stjórnkerfinu og tryggja að jafnréttissjónarmið séu alltaf höfð til hliðsjónar. Á erlendum vettvangi fæ ég oftsinnis spurningar um af hverju Ísland sé komið svona langt, hvaða lærdóm megi draga af þeim aðgerðum sem Ísland hefur farið í. Þess vegna er mikilvægt að geta nálgast á einum stað heildstæðar upplýsingar um jafnréttismál á Íslandi."

Vefslóð á íslenska útgáfu: stjornarradid.is/jafnretti

Vefslóð á enska útgáfu: government.is/equality

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum