Kynning nýrra gæðaviðmiða fyrir frístundaheimili
Ný
markmið og viðmið í gæði starfs á frístundaheimilum hafa verið kynnt
rekstraraðilum frístundaheimila á alls 14 fundum víðs vegar um landið sem
haldnir voru á vegum mennta- og
menningarmálaráðuneytis,
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og fræðsluyfirvalda sveitarfélaga.
Leiðarljós frístundaheimila er að bjóða börnum upp á þátttöku í fjölbreyttu
frístunda- og tómstundastarfi með það að markmiði að efla sjálfstraust og
félagsfærni þeirra. Lögð er áhersla á að umhverfi starfsins einkennist af
öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir
starfshættir eru í hávegum hafðir í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
Megináherslur viðmiðanna má nálgast á veggspjaldi sem einnig hefur verið þýtt á
ensku og pólsku. Þau má nálgast hér á Stjórnarráðsvefnum. Öllum
sveitarfélögum sem reka grunnskóla og frístundaheimili fyrir 6-9 ára börn verða
sendar upplýsingar um hvar nálgast má efnið.
„Frístundaheimili gegna mikilvægu hlutverki í
lífi margra fjölskyldna barna á grunnskólaaldri. Þar fer fram frábært
starf og innleiðing gæðaviðmiðanna verður til þess að efla það enn
frekar. Þetta eru metnaðarfull viðmið sem veita skýrar leiðbeiningar til allra
er tengjast slíku starfi og ég hvet alla áhugasama til þess að kynna sér þau.
Mikið og gott samráð hefur átt sér stað í þessari vinnu við sveitarfélögin sem
reka frístundaheimilin og aðra helstu hagsmunaaðila starfseminnar. Alls staðar
komu fram jákvæð viðhorf við gerð markmiða og viðmiða og rætt um þýðingarmikið
skref til að efla faglegt starf frístundaheimila og auka þróunarstarf í
heimabyggð,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Menntavísindasvið HÍ vinnur einnig að fræðsluefni um fagstarf frístundaheimila. Því er ætlað að varpa ljósi á hugmyndafræðilegan grunn starfs í frístundaheimilum og þjóna sem bæði innblástur og stuðningur við starfsfólk þeirra um land allt.
Starfsemi frístundaheimila hefur breyst mjög frá árinu 1995 þegar heimildarákvæði um þau var sett grunnskólalög. Í kjölfar lagasetningar 2016 hóf starfshópur að vinna viðmið um gæði frístundastarfs, þ.m.t. um hlutverk og markmið, skipulag og starfsaðstæður, starfshætti, stjórnun og menntun starfsfólks frístundaheimila. Viðmið og markmið frístundaheimila voru síðan formlega gefin út árið 2018.