Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Unnið að stofnun miðhálendisþjóðgarðs

Óli Halldórsson, formaður nefndar um stofnun miðhálendisþjóðgarðs sagði frá starfi nefndarinnar - mynd

63% almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendisins að þar sé einstök náttúra og þverpólitísk nefnd vinnur nú að því að undirbúa stofnun miðhálendisþjóðgarðs. Þetta er meðal þess sem fram hefur komið á Umhverfisþingi sem umhverfis- og auðlindaráðherra boðaði til og stendur nú yfir á Grand hóteli. Hægt er að fylgjast með streymi af þinginu á vef Stjórnarráðsins.

 



Michaël Bishop kynnti niðurstöður spurningakönnunar sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og fram kom að tæplega 63% af þeim sem tóku afstöðu eru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu en tæplega 10% andvíg honum. Fram kom að ríflega 75% þeirra sem eru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu tiltaka að hann myndi vernda mörg svæði sem ekki njóta verndar í dag, rúmlega 70% þeirra að hann myndi vernda miðhálendið sem eina heild og 68% að hann myndi auka skilning á verðmæti miðhálendisins. Rannsóknin var hluti af meistaraverkefni Michaëls í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands.

 

Samráðsfundir framundan með hagsmunaaðilum

Tillaga um miðhálendisþjóðgarð er skrifuð í sáttmála ríkisstjórnar Íslands og fram kom á Umhverfisþinginu að þverpólitísk nefnd sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði síðastliðið vor vinnur nú að framgangi málsins. Í máli Óla Halldórssonar, formanns nefndarinnar, kom fram að nefndin væri byrjuð að fjalla um mörk þjóðgarðsins og að stefnt væri að samráðsfundum með sveitarfélögum og nytjaréttarhöfum en slíkt samtal væri afar mikilvægt. Nefndin mun skila af sér tillögu að lagafrumvarpi næsta haust.

Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamálafræði við HÍ, kynnti rannsóknir sína á viðhorfum ferðamanna á miðhálendinu en hún hefur í gegnum tíðina lagt spurningalista fyrir alls 9.000 ferðamenn á hálendinu og tekið viðtöl við hátt í 300 manns. Í máli hennar kom meðal annars fram að ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendis að þar sé einstök og lítt snortin náttúra, einfaldleiki, kyrrð og fámenni.

 

Bein útsending frá Umhverfisþingi.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum