Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Íbúar fátækra ríkja í langmestri hættu vegna loftslagsbreytinga

Ljósmynd: IRIN/ Jacob Zocherman - mynd

Íbúar lágtekjuríkja eru að minnsta kosti fjórum sinnum líklegri til þess að lenda á vergangi vegna loftslagsbreytinga en íbúar efnaðri ríkja, þrátt fyrir að bera minnstu ábyrgð á breytingum í veðurfari. Þetta staðhæfir Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum, OCHA.

Veðurhamfarir leiða ár hvert til þess að milljónir jarðarbúa þurfa á neyðaraðstoð að halda. Að mati Sameinuðu þjóðanna þarf að gera miklu meira til þess að sjá fyrir og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða áður en lífi milljóna manna er stefnt í hættu.

Árið 2019 voru 34 milljónir manna á heimsvísu á barmi hungursneyðar vegna öfga í veðurfari og hættur tengdar veðri leiddu til fólksflótta 24,9 milljóna í 140 löndum.

OCHA hefur sett upp vefsíðu með sláandi dæmum um breytingar á loftslagi og áhrifum þeirra á íbúa fjölmargra fátækra ríkja í heiminum, eins og Suður-Súdan, Sýrland, Jemen og ríkja í Suður-Asíu.

OCHA er ein af helstu samstarfsstofnunum Íslands í mannúðarmálum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum