Hoppa yfir valmynd
26. maí 2020 Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Skýrsla um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum

Frá skilafundi verkefnisstjórnar í heilbrigðisráðuneytinu - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að undirbúa framkvæmd vegna sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, líkt og stjórnvöld áforma, skilaði skýrslu með niðurstöðum sínum í gær. Í stuttu máli er niðurstaða hópsins sú að miðað við gefnar forsendur sem lagðar voru til grundvallar sé verkefnið framkvæmanlegt en að leysa þurfi úr mörgum verkþáttum áður en hægt verður að hefjast handa við skimun á landamærum. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun og ákveðið að forsætisráðuneytið muni leiða næstu skref.

Frá skilafundi verkefnisstjórnar í heilbrigðisráðuneytinuVerkefnisstjórnin var skipuð á grundvelli  tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra  um að stefna að því að bjóða  COVID-19 próf  við komuna til landsins í stað þess að  framvísa vottorði sem sóttvarnalæknir metur gilt eða sæta 14 daga sóttkví. Tillagan var kynnt ríkisstjórn 12. maí sl. Þessi kostur ætti að standa til boða eigi síðar en 15. júní og miðað við endurmat á verkefninu að tveimur vikum liðnum.

Eins og fram kemur í skipunarbréfi hópsins var verkefni hans skýrt afmarkað og ákveðnar forsendur lagðar til grundvallar, til að mynda varðandi afkastagetu veirufræðideildar vegna sýnatöku og greiningar, greiningartíma, kostnað o.fl.

Hildur Helgadóttir verkefnastjóriHildur Helgadóttir sem leiddi vinnu verkefnisstjórnarinnar kynnti niðurstöðurnar fyrir heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra á fundi í gær ásamt öðrum fulltrúum verkefnisstjórnarinnar. Fundinn  sat einnig sóttvarnalæknir. Eins og fram kemur í niðurstöðukafla meðfylgjandi skýrslu eru ýmis mál sem þarf að leysa og verkefni sem þarf að hrinda í framkvæmd til að hefja skimun á landamærum í samræmi við áætlun stjórnvalda. Verkefnið er engu að síður framkvæmanlegt að mati verkefnisstjórnarinnar eins og áður getur.

Ákvörðun um afléttingu ferðatakmarkana liggur ekki fyrir  og verður ekki tekin fyrr en tillögur sóttvarnalæknis til ráðherra þar að lútandi liggja fyrir.

Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir áhættumati Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri vegna fyrirhugaðra tilslakana á ferðatakmörkunum og eru þau gögn meðfylgjandi:

  • Hildur Helgadóttir verkefnastjóri - mynd
  • Frá skilafundi verkefnisstjórnar í heilbrigðisráðuneytinu - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum