Hoppa yfir valmynd
28. september 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Breyting á hollustuháttareglugerð um tilslökun vegna gæludýra til kynningar

Saman við Tjörnina - myndYadid Levy/Norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um hollustuhætti.

Breytingar á reglugerðinni  kveða á um að eigendum eða rekstraraðilum veitingastaða sé heimilt að leyfa gestum að koma með hunda, ketti og önnur gæludýr inn á veitingastaði, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Einnig er gert ráð fyrir breytingu á fylgiskjali 3 með reglugerðinni þar sem tilgreindir eru þeir staðir sem óheimilt er að hleypa gæludýrum inn á.

Frestur til að skila umsögnum um reglugerðardrögin er til 13. október nk. og má senda þær á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Drög að reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti (word-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum