Hoppa yfir valmynd
7. desember 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Græni dregillinn fundar í fyrsta skipti - stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt stýrihópi um loftslagstengd græn nýfjárfestingarverkefni. - mynd

Stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar eða Græni dregillinn, kom saman í fyrsta skipti í Grósku á mánudag. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði stýrihópinn í síðasta mánuði.

Græna dreglinum er ætlað að efla stuðning við aðila sem sýna áhuga á að ráðast í loftslagstengd græn nýfjárfestingarverkefni á Íslandi. Markmið Græna dregilsins er að framfylgja stefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs t.a.m. á sviði útflutnings, erlendrar fjárfestingar, nýsköpunar, orkumála, loftslagsmála og sjálfbærni. Jafnframt að fjölga störfum með áherslu á græna nýsköpun, aukna framleiðni og virkjun hugvits til þess að stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Fyrir liggur að allmörg nýfjárfestingarverkefni eru í athugun víðs vegar um landið. Eitt af fyrstu verkefnum stýrihópsins verður að móta umgjörð um græna iðngarða og aðra græna atvinnuuppbyggingu í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:

„Það er mikilvægt að stuðla að auknum fjárfestingum í verkefnum sem leggja sitt af mörkum til að ná fram markmiðum stjórnvalda um minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Við sem þjóð höfum dregist aftur úr hvað varðar stuðningsumhverfi við nýfjárfestingarverkefni og því er nauðsynlegt að gera betur með aukinni samvinnu ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. Ég hef trú á að græni dregillinn muni ná að efla atvinnulífið, auka samkeppnishæfni Íslands og treysta byggð á landsbyggðinni með grænum nýfjárfestingum og uppbyggingu grænna iðngarða.“

Diljá Mist Einarsdóttir er formaður stýrihópsins:

„Ég hlakka að starfa með þessu öfluga fólki og hef mikla trú á því að við getum stórbætt ferla og þjónustu við umhverfis- og loftslagsvæn nýfjárfestingaverkefni,“ segir Diljá Mist.

Aðrir sem skipa stýrihópinn eru þau:

Halla Sigrún Sigurðardóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Guðlaug Guðjónsdóttir, Skattinum

Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun

Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun

Hugrún Geirsdóttir, Umhverfisstofnun

Ragnar G. Kristjánsson, utanríkisráðuneytinu

Eggert Benedikt Guðmundsson, forsætisráðuneytinu

Ólafur Heiðar Helgason, fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Sigríður Valgeirsdóttir, háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

Arnheiður Ingjaldsdóttir, innviðaráðuneytinu

Ingvi Már Pálsson, menningar- og viðskiptaráðuneytinu

Björn Helgi Barkarson, matvælaráðuneytinu

Pétur Óskarsson, Íslandsstofu

Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkustofnun

Hrönn Hrafnsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

 

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar stýrihópinn.  - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum