Hoppa yfir valmynd
20. október 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Málþingið Mataraðstoð – ný framtíðarsýn?

Þriðjudaginn 26. október stendur Velferðarvaktin fyrir málþinginu Mataraðstoð – ný framtíðarsýn? Málþingið fer fram í Háteig, 4. hæð, Grand hóteli, kl. 9.30-11.45 og er opið öllum. Þátttaka er gjaldfrjáls og verður boðið upp á kaffiveitingar. Þeir sem ætla að mæta til málþingsins á Grand hóteli þurfa að skrá sig. Þeir sem ætla að fylgjast með á streyminu þurfa ekki að skrá sig.

Kynntar verða skýrslur um fyrirkomulag mataraðstoðar og ráðgjafar hjálparsamtaka á Íslandi og á Norðurlöndum sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Velferðarvaktina og félagsmálaráðuneytið. Þá verða kynntar tilteknar aðgerðir í fyrstu heildstæðu aðgerðaráætlun stjórnvalda gegn matarsóun, sem umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram í september, en þar er meðal annars fjallað um matarbanka og matarvagn. Hér er dagskrá þingsins.

Dagskrá:

Kl. 9:30 Þingsetning

Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktar

Kl. 9:35 Kynning á mataraðstoð og ráðgjöf hjálparsamtaka á Íslandi og á Norðurlöndum

Ásdís Aðalbjörg Arnalds, Félagsvísindastofnun HÍ, kynnir niðurstöður tveggja skýrsla sem unnar voru fyrir Velferðarvaktina og félagsmálaráðuneytið:

Úttekt á fyrirkomulagi úthlutana og ráðgjafar hjálparsamtaka- Hvaða hópar leita aðstoðar?

Aðstoð hjálparsamtaka á Norðurlöndunum.

Kl. 10:10 Viðbrögð notenda, hvernig má auka valdeflingu?

Ásta Þórdís Skjalddal, samhæfingarstjóri PEPP-samtaka fólks í fátækt

Kl. 10:20 Er ávinningur af auknu samstarfi félagasamtaka sem sinna aðstoð?

Eydís Ösp Eyþórsdóttir, stjórnarmeðlimur í Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis, kynnir fyrir hönd samstarfsaðila um matar- og fjárhagsaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu

Kl. 10:30 Örstutt hlé

Kl. 10:40  Ný áætlun gegn matarsóun. Eru búðir/matarbankar snjöll leið?

  • Guðmundur B. Ingvarsson, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kynnir aðgerðir 7, 10, 19, 23 og 24 í áætluninni Minni matarsóun-Aðgerðaráætlun gegn matarsóun, frá 24. september 2021
  • Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakandi, samtaka um aukna vitundarvakningu varðandi sóun matvæla og
  • Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, fjalla um hugmyndir um búðir/matarbanka með mjög ódýrum/ókeypis mat

Kl. 11:10 Umræða á borðum þar sem leitað verður svara við eftirfarandi spurningum:

1. Hvernig má taka meira tillit til óska notenda úr skýrslunni? 2. Er vilji til að auka samráð milli félagasamtaka og þá hvernig? 3. Er snjallt að koma upp sérstökum verslunum með ódýrum/ókeypis mat? 4. Hvernig verður fyrirkomulag aðstoðar eftir 10 ár?

Velferðarvaktin tryggir ritara á hvert borð sem tekur saman svarpunkta sem nýtast svo í framhaldinu í starfi vaktarinnar og víðar

Kl. 11:40 Lokaorð og málþingi slitið

Vilborg Oddsdóttir, formaður sárafátæktarhóps Velferðarvaktar

Streymt verður frá fyrstu dagskrárliðum málþingsins kl.9:30-11:10.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum