Hoppa yfir valmynd
6. október 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Niðurstöður könnunar á einangrun og einmanaleika eldra fólks eftir uppruna

Samanburður á virkni og einangrun eftir uppruna. - mynd

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur látið framkvæma könnun á einangrun og einmanaleika eldra fólks af íslenskum og erlendum uppruna. Könnunin tengist framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast sem og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem báðar eru á ábyrgð ráðuneytisins.

Félagvísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi könnunina og var hún á fjórum tungumálum: Íslensku, ensku, pólsku og spænsku. Alls svöruðu tæplega 1.400 einstaklingar. Þetta er í fyrsta skipti sem könnun sem þessi er gerð út frá uppruna. Lítið var vitað um líðan eldri innflytjenda en könnunin breytir því.

Líkamleg og andleg heilsa metin góð

Niðurstöður voru þær að 67% svarenda töldu líkamlega heilsu sína frekar eða mjög góða og 85% töldu andlega heilsu frekar eða mjög góða. 

Þá sýndu niðurstöður að almennt var eldra fólk félagslega virkt og meirihluti var ekki félagslega einangraður. Um 90% hitti einhvern utan heimilis að lágmarki vikulega og um 75% fékk börn, ættingja eða vini í heimsókn eða heimsótti þau a.m.k. einu sinni í viku. Félagsleg virkni var örlítið minni hjá þeim sem voru eldri og hjá innflytjendum en lítill munur reyndist þar á. 

Gögn sýna enn fremur að þótt dregið hafi úr daglegum heimsóknum og þær séu nú oftar vikulega en áður hefur hlutfall þeirra sem fær aldrei heimsókn lækkað verulega. Árið 1999 fékk 9% eldra fólks aldrei heimsókn frá börnum, ættingjum eða vinum en það hlutfall var komið niður í 3% árið 2023. 

Einmanaleiki er í könnun Félagsvísindastofnunar samsettur úr svokölluðum félagslegum einmanaleika, sem á við fjölda félagslegra samskipta fólks, og hins vegar tilfinningalegum einmanaleika, sem vísar til skorts á tengslum við fólk eða nánum samböndum eins og til dæmis við maka.

Á heildina litið sýna niðurstöður að 41% eldra fólks hér á landi er ekki einmana. Á hinn bóginn er 6% eldra fólks talsvert eða gífurlega einmana. Þá er hærra hlutfall fólks með tilfinningalegan einmanaleika fremur en félagslegan, þ.e.a.s. algengara er að skorta tengsl við fólk / náin sambönd heldur en að skorta almenn félagsleg samskipti við fólk.

Sé greint eftir uppruna þá benda niðurstöðurnar til þess að eldri innflytjendur séu meira einmana en einstaklingar af íslenskum uppruna. 11% innflytjenda er talsvert eða gífurlega einmana samanborið við 4% einstaklinga af íslenskum uppruna.

Lítill einmanaleiki í alþjóðlegum samanburði

Gögn sýna að í alþjóðlegum samanburði er lítill einmanaleiki meðal eldra fólks á Íslandi. Aðeins um 5% eldra fólks hér á landi segist vera oft einmana og er það sambærilegt við önnur Norðurlönd og Vestur Evrópu. Á öðrum svæðum í Evrópu mælist einmanaleiki um 7-13%. Enn fremur hefur hlutfallið lítið breyst síðastliðinn áratug hér á landi.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóð í síðustu viku fyrir kynningarfundi um niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hóf fundinn og að því búnu kynnti Helgi Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun, niðurstöðurnar.

  •  Horfa á kynningarfund
  •  Skoða glærur af kynningarfundinum

 

Samanburður á virkni og einangrun eftir uppruna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum