Frestun á námskeiðum um persónulega talsmenn
Námskeiðum um persónulega talsmenn fatlaðs fólks skv. lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sem fyrirhuguð voru 26. september og 10. október næstkomandi, hefur verið frestað. Nýjar dagsetningar námskeiða verða auglýstar innan fárra daga þegar hægt verður að tryggja sóttvarnir í samræmi við gildandi reglur. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá réttindagæslumanni viðeigandi landshluta í tölvupósti eða síma.