Hoppa yfir valmynd
11. september 2021 Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Elif Shafak - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness.

Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt en það var gert í fyrsta sinn á Bókmenntahátíð í Reykjavík árið 2019 þegar Ian McEwan hlaut verðlaunin.

Verðlaunin nema 15.000 evrum og eru veitt alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að stuðla að endurnýjun sagnalistar með verkum sínum, en fyrir það hlaut Halldór sjálfur Nóbelsverðlaunin á sínum tíma.

Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi standa að verðlaununum.

Verðlaunin eru veitt á á Bókmenntahátíð í Reykjavík sem haldin er annað hvort ár. Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni voru Eliza Reid forsetafrú, Stella Soffía Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík og Ian McEwan fyrsti handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness.

Tvær skáldsögur Shafak hafa komið út á íslensku, Heiður í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur (2014) og 10 mínútur og 38 sekúndur í þessari undarlegu veröld í þýðingu Nönnu Þórsdóttur (2021).

Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við afhendingu verðlaunanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum