Hoppa yfir valmynd
6. desember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Beiðni um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar gagnvart fötluðum einstaklingi

Nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar starfar samkvæmt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og reglugerð um undanþágunefnd um bann við beitingu nauðungar gagnvart fötluðum einstaklingi nr. 971/2012. Samkvæmt 10. gr. laganna er öll beiting nauðungar í samskiptum við fatlað fólk bönnuð nema veitt hafi verið undanþága á grundvelli 12. gr. eða um sé að ræða neyðartilvik skv. 13. gr.

Þegar þjónustuaðili, forstöðumaður eða annar sem ber ábyrgð á þjónustu við fatlaðan einstakling þarf að bregðast við aðstæðum þannig að til greina komi að beita þurfi viðkomandi nauðung skal hann leita til sérfræðiteymis skv. 14. gr laganna og skal umsögn teymisins fylgja með beiðni um undanþágu frá banni skv. 16. gr

Samkvæmt 12. grein laganna er í sérstökum og einstaklingsbundnum tilvikum heimilt að víkja frá banni að fengnu leyfi undanþágunefndar enda sé sýnt fram á að tilgangur nauðungar eða fjarvöktunar sé eftirfarandi:

  1. Að koma í veg fyrir að fatlaður einstaklingur valdi sjálfum sér eða öðrum líkamstjóni eða stórfelldu eignatjóni. Það á einnig við fyrirbyggjandi aðgerðir sem ætlað er að forða því að aðstæður komi upp sem leitt geta til líkamstjóns eða stórfellds eignatjóns.
  2. Að uppfylla grunnþarfir viðkomandi einstaklings, svo sem varðandi mat, heilbrigði og hreinlæti, eða til þess að draga úr hömluleysi sem af fötlun kann að leiða.

Sækja skal um undanþágu til undanþágunefndar á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins sem er aðgengilegt á http://minarsidur.stjr.is

Aðgangur að eyðublaðavefnum er veittur á kennitölu þjónustuaðila eða einstaklinga, í því tilfelli á kennitölu ábyrgðarmanns þjónustuaðila.

  1. Viðkomandi velur flipann Nýskráning, skráir þar kennitölu og netfang og velur sér lykilorð. Tölvupóstur berst síðan á uppgefið netfang og skráningin er staðfest.
  2. Þegar skráning hefur verið staðfest skráir viðkomandi sig inn með kennitölu og lykilorði undir Innskráning og velur síðan flipann Eyðublöð en þar undir Ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk er eyðublaðið.
  3. Sjá einnig nánari leiðbeiningar um notkun eyðublaðavefsins

Athugið að eyðublaðið má vista meðan á vinnslu stendur en umsókn/tilkynning berst ekki nefndinni fyrr en hún hefur verið send.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Gunnarsson í síma 545 8100 eða í tölvupósti á [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum