Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2020 Utanríkisráðuneytið

Tilraunir með kælibúnað í fiskibátum í Síerra Leóne

Smábátaútgerð í Síerra Leone. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Fyrirtækið Ocean Excellence ehf. hefur fengið tveggja milljóna króna forkönnunarstyrk úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til þess að gera tilraunir með kælibúnað um borð í fiskibátum í Síerra Leóne. Kæling er lykilatriði til að viðhalda hámarksgæðum í allri virðiskeðjunni, allt frá því fiskur er dregin úr sjó þar til hann kemur á borð neytandans.

Í flestum þróunarríkjum misferst eða skemmist stór hluti af afla strandveiði manna vegna skorts á kælingu og þar af leiðandi tapast mikil verðmæti. Verkefni Ocean Excellence ehf. hefur það markmið að ráða bót á þessum vanda í allri virðiskeðjunni en í verkefnið í upphafi beinist að fyrsta stigi hennar, kælingunni um borð í bátum og við löndun.

Að sögn Þórs Sigfússonar stjórnarformanns Ocean Excellence ehf. er um að ræða sólardrifna varmadælu til kælingar á saltvatni sem hægt er að koma fyrir í einföldu plastkari. „Búnaðurinn er meðal annars ætlaður til að notkunar þar sem aðstæður eða veikir innviðir koma í veg fyrir að kæling fisks á hefðbundinn hátt sé möguleg. Það til dæmis við um Síerra Leone en tæknin bætir bæði nýtingu og verðmæti fiskafurða,“ segir hann og bætir við að verkefnið sé unnið í samstarfi við Alþjóðabankann og fiskiverkefni bankans í Vestur-Afríku.

Verkefnið styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á ýmsan hátt, meðal annars hvað varðar aðgerðir í loftslagsmálum með því að draga úr kolefnisfótspori, betri umgengni við náttúruauðlindir, nýsköpun, baráttu gegn hungri og fátækt, og eflingu jafnréttis.

Samstarfssjóður við atvinnulíf um heimsmarkmiðin er sjóður á vegum utanríkisráðuneytisins sem hefur það hlutverk að hvetja til þátttöku atvinnulífsins í þróunarsamvinnu með það fyrir augum að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum heims. Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn til 7. desember.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
9. Nýsköpun og uppbygging
1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum