Hoppa yfir valmynd
26. september 2022

Ferðalög til Rússlands og Úkraínu

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins vekur athygli á því að helstu vinaþjóðir Íslands vara enn við ferðum til Rússlands. Flugleiðum úr landi fækkaði mjög vegna lokunar lofthelgi Evrópuþjóða fyrir rússneskum loftförum og gagnkvæmra aðgerða rússneskra yfirvalda. Í kjölfar tilskipunar stjórnvalda þann 21. september sl. um herkvaðningu hefur reynst erfiðara að finna flug- eða rútuferðir úr landi. Þá ber að hafa í huga að ekki er mögulegt að nota erlend greiðslukort í Rússlandi.

Þá er eindregið varað við ferðum til Úkraínu, sérstaklega til svæða þar sem átök geisa eða eru undir rússneskum yfirráðum. Möguleikar til að veita íslenskum ríkisborgurum borgaraþjónustu á þeim svæðum eru mjög takmarkaðir.  

Ef viðvera íslenskra ríkisborgara í Rússlandi eða Úkraínu er ekki nauðsynleg hvetur borgaraþjónustan þá að endurskoða ferðaáætlun sína. Eru þeir hvattir til að fylgjast með ferðaviðvörunum utanríkisráðuneyta Norðurlanda. Þeir eru einnig hvattir til að láta borgaraþjónustuna vita af sér með tölvupósti, [email protected]. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við borgaraþjónustuna í síma +354 545-0112.

Sjá tengla á vefsíður utanríkisráðuneyta Norðurlanda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum