Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Endurreisn ferðaþjónustunnar lykill að endurreisn efnahagslífsins og bættra lífskjara

„Það sem er efst í huga mér, og eflaust okkar allra, við þessi áramót er endurreisn ferðaþjónustunnar eftir þann mikla samdrátt sem hefur átt sér stað í kjölfar COVID-19 faraldursins. Endurreisn ferðaþjónustunnar er lykilinn að endurreisn íslensks efnahagslífs og bættra lífskjara hér á landi,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, í opnunarávarpi sínu á Nýjársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Íslenska ferðaklasans og KPMG. Málstofan bar yfirskriftina Ferðaþjónusta nýrra tíma og var markmið hennar að velta upp helstu áskorunum og tækifærum ferðaþjónustunnar.

Ráðherra beindi sjónum sínum að mikilvægi enduruppbyggingar íslenskrar ferðaþjónustu eftir heimsfaraldur COVID-19 og framtíðarsýn. „Í því samhengi má spyrja, verður endurreisnin byggð á gömlum grunni, hvernig sem hann var, eða mun hún byggja á einhverjum varanlegum breytingum til hins betra? Þó myndin sé enn óljós held ég að við skynjum öll ákveðna hugarfarsbreytingu. Það eru líka vísbendingar um jákvæðar breytingar sem munu vonandi halda sér, breytingar sem eru tilkomnar ekki aðeins vegna heimsfaraldursins heldur sem ávöxtur vinnu sem hefur átt sér stað bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila á síðustu misserum,“ sagði ráðherra og ræddi meðal annars um mikilvægi áfangastaðastofa, fjárfestingar stjórnvalda í innviðum á ferðamannastöðum og í samgöngum og þær viðspyrnuaðgerðir sem ráðist var í vegna heimsfaraldursins.

 

Hér má nálgast upplýsingar um málstofuna.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum