Hoppa yfir valmynd
15. september 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafa undanfarið haft til skoðunar  eftirlitskerfi hins opinbera með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum. Eftirlitið er í dag bæði í höndum ríkisstofnana og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á tíu heilbrigðiseftirlitssvæðum.  

Samkvæmt stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar hefur verið lögð áhersla á að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings og að stjórnsýsla sé skilvirk og réttlát. Með það fyrir augum óskuðu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, eftir því að endurskoðunarfyrirtækið KPMG myndi greina framkvæmd hins opinbera eftirlits. Niðurstaða greiningarinnar er sú að endurskoða þurfi núverandi eftirlitskerfi, m.a. þar sem ósamræmis gæti í framkvæmd opinbers eftirlits og skráningum eftirlitsaðila, auk þess sem 39% munur sé á hæsta og lægsta tímagjaldi heilbrigðisnefnda. 

Greiningarvinna þessi var sett af stað m.a. í kjölfar ábendinga um að sá fjöldi stjórnvalda sem fer með eftirlitið hafi leitt til þess að kröfum í eftirlitinu sé misjafnlega framfylgt og að gjaldskrár eftirlitsaðila séu mismunandi. 

 

Ráðherrarnir kynntu málið á fundi ríkisstjórnar í gær þar sem fram kom að fyrirhugað sé að vinna tillögur að breytingum á núverandi eftirlitskerfi. 

Við vinnuna verður litið til skýrslu KPMG og athugasemda sem við hana bárust. Haft verður samráð við haghafa, þ. á m. Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun. 

 

Hér má lesa skýrsluna

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum