Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

Ísland tekur í dag sæti í stjórn Alþjóðabankans

Geir H. Haarde. Ljósmynd: UTN - mynd

Geir H. Haarde, fyrrverandi sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum. Hann kemur til með að stýra skrifstofu kjördæmisins í höfuðstöðvum bankans í Washington um tveggja ára skeið og situr í 25 manna stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins. Ísland er fámennasta aðildarríki bankans sem skipar í stöðu aðalfulltrúa í stjórn hans. 

Alþjóðabankinn er stærsta þróunarsamvinnustofnun í heiminum og aðalfulltrúinn gegnir umfangsmiklu samræmingarstarfi kjördæmisins,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. „Alþjóðabankinn hefur lengi verið ein helsta samstarfsstofnun okkar í þróunarmálum og á síðustu árum hefur okkur tekist að koma íslenskri sérþekkingu á framfæri í verkefnum bankans, einkum á sviði jarðhita, fiskimála og jafnréttis- og mannréttindamála,“ segir Guðlaugur Þór, sem tók jafnframt sæti í þróunarsamvinnunefnd bankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir hönd kjördæmisins.

Næstu tvö árin kemur í hlut Íslands að halda utan um samstarf kjördæmislandanna og samskipti við skrifstofu kjördæmisins og höfuðborgir landanna, en sérstök deild innan þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins sinnir verkefninu með sjónarmið allra þjóðanna átta að leiðarljósi.

Af þeim fimm stofnunum sem Alþjóðabankinn samanstendur af, fer stór hluti íslenskra framlaga til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) sem veitir fátækustu ríkjum heims styrki og lán á hagstæðum kjörum. Að sögn Þórarinnu Söebech, fulltrúa Íslands á skrifstofu Alþjóðabankans, er endurfjármögnun IDA mikilvægasta verkefnið sem bankinn fæst við um þessar mundir. Af öðrum stórum verkefnum nefnir hún Mannauðsverkefnið, Human Capital Project, sem bankinn kynnti í lok síðasta árs og lýtur að fjárfestingu í mannauði komandi kynslóða.

Milli kjördæmislandanna ríkir samkomulag um að Norðurlöndin fimm útnefni til skiptis aðalfulltrúa í stjórn bankans og leiði á sama tíma samræmingarstarf kjördæmisins. Samræmingarhlutverkið krefst þess að fulltrúar Íslands fylgjast náið með allri starfsemi bankans, geti sett sig efnislega inn í öll helstu mál og myndað ígrundaða afstöðu til þeirra mála sem eru á dagskrá hverju sinni og leitt samræmingu á afstöðu kjördæmisins í málefnum bankans.

Til marks um gífurleg umsvif Alþjóðabankans má nefna að árið 2017 samþykkti bankinn lán og fjárveitingar til verkefna að upphæð 67 milljarða Bandaríkjadala. Verkefni á vegum bankans eru samtals 13.730 í 174 þjóðríkjum.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
9. Nýsköpun og uppbygging
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum