Hoppa yfir valmynd
5. mars 2018 Utanríkisráðuneytið

Allt að 70 milljónir til mannúðarverkefna borgarasamtaka

Ákveðið hefur verið að veita allt að 70 milljónum króna til mannúðarverkefna borgarasamtaka. Þar af mun ráðuneytið veita allt að 42,5 milljónum króna til annarra verkefna en þeirra sem bregðast við neyð fólks vegna ástandsins í Sýrlandi. Utanríkisráðuneytið óskar eftir styrkumsóknum frá íslenskum borgarasamtökum vegna þessara mannúðarverkefna. Umsóknir skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl. 23:59 fimmtudaginn 5. apríl næstkomandi.

Við þessa styrkúthlutun verður farið eftir verklagsreglum ráðuneytisins um samstarf við borgarasamtök frá 2015. Í reglunum er að finna vinnulag og önnur viðmið sem notuð eru við mat á umsóknum auk skilyrða sem borgarasamtök verða að uppfylla til að geta sótt um styrki.

Horft er til gæða og væntanlegs árangurs verkefna. Sérstök athygli er vakin á því að búist er við að verkefnin svari alþjóðlegum neyðarköllum (e. appeal), s.s. frá samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna vegna mannúðarmála (UNOCHA/ReliefWeb) og Alþjóðaráði Rauða krossins og Rauða hálfmánans (ICRC). Einnig er mikilvægt að inngrip og framkvæmd verkefna íslenskra borgarasamtaka sé samhæft aðgerðum annarra aðila á vettvangi. Litið er á skilvirkni og kröfur gerðar um vönduð og fagleg vinnubrögð, sem eru lykilatriði við ákvarðanatöku um framlög. Við mat á umsóknum verður m.a. stuðst við viðmið SPHERE handbókarinnar til að tryggja lágmarksaðstoð við haghafa.

Verklagsreglur utanríkisráðuneytisins byggjast m.a. á alþjóðlegri stefnu og starfsaðferðum við styrkveitingar úr opinberum sjóðum og stefnumiðum ráðuneytisins.

Einungis verður tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vef Stjórnarráðsins, en þar má einnig finna nánari upplýsingar um verklagsreglur, sem og aðrar hagnýtar upplýsingar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum