Hoppa yfir valmynd
21. maí 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðsókn í kennaranám eykst um 30%

Umsóknum um framhaldsnám til kennsluréttinda í leik- og grunnskólakennaranámi við Háskóla Íslands fjölgar um 30% miðað við meðaltal síðustu fimm ára samkvæmt upplýsingum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Heildarfjöldi umsækjenda um M.Ed.-nám til kennsluréttinda í leik- og grunnskólum í ár er 264 nemendur en þeir hafa verið 186 að meðaltali sl. fimm ár.

„Þetta eru virkilega ánægjulegar fréttir og að mínu mati góð vísbending um að við séum á réttri leið. Kennarastarfið er enda spennandi kostur sem býður upp á fjölbreytta starfsmöguleika og mikið starfsöryggi. Það er eftirtektarverð gróska í íslenskum skólum þessi misserin og ég finn sjálf fyrir miklum meðbyr með menntamálum og umræðunni um íslenskt skólastarf til framtíðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. 

Fyrr í vor kynnti ráðherra aðgerðir sem miða að fjölgun kennara en í þeim felst meðal annars að frá og með næsta hausti býðst leik- og grunnskólakennaranemum á lokaári launað starfsnám. Þá geta nemendur á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi sótt um námsstyrk sem nemur alls 800.000 kr. til að sinna lokaverkefnum sínum samhliða launuðu starfsnámi. 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitir enn fremur styrki til að fjölga kennurum með sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn sem m.a. taka á móti nýjum kennurum sem koma til starfa í skólum. Umsóknum um slíkt nám hefur fjölgað um 100% milli ára samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands.

Umsóknafrestur um grunnnám í kennslufræðum í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri er til 5. júní nk.

Nánari upplýsingar um valkosti í kennaranámi má nálgast á vefnum komduadkenna.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum