Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2019 Utanríkisráðuneytið

Allt að 120 milljónir til verkefna í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð

Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Utanríkisráðuneytið ætlar að verja allt að 120 milljónum króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála í gegnum félagasamtök. Umsóknarfrestur um verkefnin er til 20. maí og niðurstöður um úthlutun fjár til verkefna ættu að liggja fyrir í júlí. Tiltölulega fá íslensk félagasamtök eru virk í alþjóðlegu starfi á þessum sviðum en utanríkisráðuneytið hefur á síðustu misserum kallað eftir þátttöku fleiri samstarfsaðila, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið.

Að auki auglýsir ráðuneytið styrki til fræðslu- og kynningarverkefna félagasamtaka í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Allt að tvær milljónir króna eru til úthlutunar að þessu sinni og styrkupphæðin getur numið allt að 80% heildarkostnaðar.

Til þróunarsamvinnuverkefna er heimilt að veita styrki til sama verkefnis að hámarki í fjögur ár og styrkupphæðir til slíkra verkefna geta numið allt að 80% heildarkostnaðar. Að þessu sinni eru til úthlutunar allt að 70 milljónir króna.

Til mannúðarverkefna eru framlög veitt í samræmi við alþjóðleg neyðarköll og í þeim tilvikum getur styrkupphæð numið allt að 95% heildarkostnaðar. Að þessu sinni eru til úthlutunar 50 milljónir króna, en þar af er 31,5 milljón króna eyrnamerkt til verkefna sem tengjast Sýrlandi, annars vegar verkefni í samræmi við neyðaráætlun Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) eða viðbragðsáætlun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Styrkupphæð getur numið allt að 95% af heildarkostnaði mannúðarverkefna.

Ítarlegar upplýsingar um framlögin, mat á umsóknum, styrkhæfni félagasamtaka og önnur atriði sem fram þurfa að koma þegar sótt um styrkina er að finna á vef utanríkisráðuneytisins undir flokknum „Samstarf við borgarasamtök“.

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti þriggja manna matshóps sem skipaður er tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar, eftir því sem við á, og einum fulltrúa utanríkisráðuneytisins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum