Hoppa yfir valmynd
14. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Íslenskt sendiráð opnað í Varsjá

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi. - mynd

Ákveðið hefur verið að íslenskt sendiráð verði stofnsett í Varsjá í Póllandi síðar á þessu ári. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti tillögu þess efnis á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag og kynnti utanríkismálanefnd málið í morgun. Hún átti í hádeginu fund með Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, þar sem honum var greint frá áformunum. Í tillögunni er jafnframt lagt til að fyrirsvar vegna Litáen, auk Úkraínu og Belarús, verði fært til hinnar nýju sendiskrifstofu.

Pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti Íslands og Póllands hafa aukist verulega á undanförnum árum. Þá á sívaxandi fjöldi Íslendinga uppruna sinn að rekja til Póllands. Hagsmunir landanna fara saman í mikilvægum málaflokkum, svo sem öryggis- og varnamálum. Þá hafa aukin samskipti landanna, ekki síst vegna fjölda Pólverja sem eru búsettir á Íslandi, eflt viðskipta- og menningartengsl.

Pólsk stjórnvöld hafa starfrækt sendiskrifstofu í Reykjavík frá 2008, fyrst með aðalræðisskrifstofu og frá 2013 sem fullgilt sendiráð. „Með opnun sendiskrifstofu Íslands í Varsjá kemst loks á nauðsynleg gagnkvæmni í stjórnmálasamband ríkjanna og það er ánægjulegt að geta stigið það skref og undirstrikað hversu verðmæt vinátta þjóðanna er fyrir okkur Íslendinga. Pólska sendiráðið í Reykjavík hefur sinnt mikilvægri þjónustu við þann stóra hóp Pólverja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendiráð í Varsjá getur að sama skapi veitt íslenskum ríkisborgurum og Pólverjum með náin tengsl við Ísland þjónustu og um leið greitt götu íslenskra fyrirtækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hagsmuna, til dæmis á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Í september 2021 kom út skýrslan Vinátta og vaxtarbroddar. Samskipti Íslands og Póllands en hún er byggð á vinnu starfshóps sem þáverandi utanríkisráðherra skipaði. Verkefni hópsins var að greina tækifæri á auknu samstarfi ríkjanna og leggja fram tillögur í því skyni. Fyrsta tillagan er að opnað verði sendiráð í Varsjá. Aðrar tillögur lúta að auknum stuðningi við aukin milliríkjasamskipti og blásið verði til sóknar í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES, svo fátt eitt sé nefnt.

„Samskipti Íslands og Póllands eru bæði mikil og blómleg og fjölmörg tækifæri eru til að þróa þau enn frekar. Íslenskt sendiráðið í Varsjá á eftir að gegna stóru hlutverki í að efla og styrkja sambandið bæði við Pólland og þau ríki sem það mun hafa fyrirsvar gagnvart á fjölmörgum sviðum,“ segir utanríkisráðherra.

Gert er ráð fyrir fyrir að sendiráð Íslands í Varsjá verði opnað í haust og yrði það þar með 27. sendiskrifstofa Íslands erlendis.

 
  • Íslenskt sendiráð opnað í Varsjá - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum