Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Viðbrögð við kórónuveirufaraldri

Íslensk stjórnvöld hafa uppi umtalsverðan viðbúnað vegna kórónaveirunnar 2019-nCOV og hefur utanríkisráðuneytið tekið virkan þátt í þeirri vinnu. Ráðuneytið gefur almennt ekki út ferðaviðvaranir en bendir þess í stað á viðvaranir sóttvarnalæknis og utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Bretlands.

Nú hafa rúmlega fjörutíu þúsund einstaklingar í heiminum greinst með veiruna, þorri þeirra í Kína. Um þúsund hafa látist, þar af tveir utan kínverska meginlandsins. Samkvæmt nýjustu fréttum hefur dregið úr fjölda nýsmitaðra í Kína undanfarna sólarhringa.
Á Íslandi er unnið samkvæmt óvissustigi – Landsáætlun – heimsfaraldur inflúensu en enginn einstaklingur hefur enn sem komið er greinst hér á landi. Utanríkisráðuneytið hefur tekið virkan þátt í samhæfðum aðgerðum stjórnvalda til að koma í veg fyrir að veiran nái hér fótfestu. Fulltrúar ráðuneytisins taka þátt í viðbragðshópi stjórnvalda sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra leiðir í samstarfi við embætti landlæknis en hópurinn fundar því sem næst dagslega.

Frá því að veiran tók að breiðast út í Kína hefur borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins jafnframt átt í daglegu samráði við borgaraþjónustur Norðurlandanna. Ennfremur hefur ráðuneytið haft náið samráð við sendiráð Íslands í Peking og aflað upplýsinga þaðan og frá móttökustöðvum þjónustuaðilans VFS Global í Kína. VFS tekur á móti umsóknum um Schengen-vegabréfsáritanir fyrir tugi ríkja, þar á meðal Íslands, í fimmtán borgum í Kína en vegna faraldursins hefur móttöku umsókna verið hætt til 17. febrúar hið minnsta. Loks hefur utanríkisráðuneytið birt á samfélagsmiðlum og Stjórnarráðsvefnum tilkynningar, m.a. um að Íslendingum í Kína sé bent á að skrá sig til fá sendar upplýsingar.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki talið ástæðu til að hvetja til ferðabanns til eða frá Kína en hvatt ferðamenn til að sleppa ónauðsynlegum ferðalögum á svæði þar sem faraldur geisar og huga vel að sýkingavörnum á ferðalögum almennt.

Utanríkisráðuneytið gefur almennt ekki út ferðaviðvaranir, meðal annars vegna takmarkaðra möguleika utanríkisþjónustunnar til að leggja sjálfstætt mat á hættuástand á hverjum stað. Í staðinn bendir ráðuneytið á ferðaviðvaranir utanríkisráðuneyta grannríkjanna, sérstaklega Norðurlandanna og Bretlands. Þannig ráða Svíar frá ónauðsynlegum ferðum til Hubei-héraðs, þar sem borgin Wuhan er, og Norðmenn ráða frá öllum ferðum til Hubei. Bæði Bretar og Danir mæla gegn ónauðsynlegum ferðum til Kína og ráða alfarið frá ferðum til Hubei-héraðs.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum