Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ráðstefna 10. febrúar 2012: Notendastýrð persónuleg aðstoð

Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu. 

Verkefnisstjórnin var skipuð í apríl 2011 í samræmi við bráðabirgðaákvæði IV í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Hlutverk hennar að móta ramma um fyrirkomulag notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og innleiða samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um innleiðingu þessarar tegundar þjónustu.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skulu sveitarfélög í samráði við verkefnisstjórnina leitast við að bjóða fötluðu fólki notendastýrða persónulega þjónustu í tiltekinn tíma. Verkefninu á að ljúka fyrir árslok 2014 með faglegu og fjárhagslegu mati á framkvæmd þess.

Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir stöðuúttekt á vinnu verkefnisstjórnarinnar og lýst verklagi á fyrsta áfanga verkefnisins en yfirskriftin er: Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.

Staður og stund

Ráðstefnan 10. febrúar verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Móttaka ráðstefnugesta hefst kl. 10:30 en dagskráin byrjar kl. 11:00 með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra.  Ráðstefnunni lýkur kl. 16.00.

Útsending á Netinu

Bein útsending verður frá ráðstefnunni á Netinu og verður hún aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins.

Skráning

Skráningu er lokið

Dagskrá

  • 10.30–11.00 Skráning
  • 11.00–11.10 Ávarp.
  • Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
  • 11.10–12.10 Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) – leiðbeiningar um framkvæmd fyrir þjónustusvæði, sveitarfélög, notendur og aðstoðarfólk.
    Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður og formaður verkefnisstjórnar NPA.
  • 12.10–12.30
    Fyrirkomulag við ráðningar á aðstoðarfólki – ráðningarsamningar, kaup og kjör.

    Sólveig B. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  • 12.30–12.40 Aðkoma Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að greiðslum vegna NPA.
    Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu.
  • 12.40–13.30 Léttar veitingar.
  • 13.30–13.55 Hugmyndafræði NPA.
    Freyja Haraldsdóttir og Embla Ágústsdóttir, frá NPA-miðstöðinni.
  • 13.55–14.15 Hvernig ber fólk sig að? Framkvæmd NPA hjá þjónustusvæðum og sveitarfélögum.
    Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri.
  • 14.15–14.40 Þjónustusamningar milli notenda og þjónustusvæða/sveitarfélaga.
    Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.
  • 14.40–15.20 Hlutverk notenda við framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) – verkstjóri – vinnuveitandi?
    Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins.
    Bryndís Snæbjörnsdóttir foreldri.
  • 15.20–15.35 Samantekt.
    Guðmundur Steingrímsson, formaður verkefnisstjórnar NPA.
  • 15.4516.00 Léttar veitingar.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum