Jafnréttisþing 2013
Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og húsnæðismálaráðherra og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 1. nóvember 2013 að Hilton Reykjavík Nordica hótel á Suðurlandsbraut kl. 9:00-17:00. Hlutverk þingsins er að efna til samræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa öllum áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum.
- Fjallað verður um fjölmargar hliðar jafnréttismála en megináhersla þingsins er að þessu sinni á jafnrétti á vinnumarkaði.
- Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Skráningu lauk 30. október.
- Jafnréttisþing 2013 á Facebook
- Dagskrá þingsins
- Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2011-2013
- Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2011-2013 (EPUB)
- Svipmyndir frá þinginu
- UPPTÖKUR FRÁ ÞINGINU
- Helstu niðurstöður úr málstofum jafnréttisþingsins
Dagskrá
Þingstjóri: | Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, leikkona. |
---|---|
09:00 – 09:10 | Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. Ávarp og setning jafnréttisþings. |
09:10 – 09:35 | Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2013. |
09:35 – 09:50 | Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti. Kynning á tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals ÍST 85:2012. |
09:50 – 10:30 |
Inge Ovesen, deildarstjóri í ráðuneyti jafnréttismála í Noregi. „Equality does not occur by itself - Challenges and Dilemmas in Norwegian Equality Policy.“ |
10:30 – 11:00 |
Kaffi. |
11:00 – 11:30 |
Gyða Margrét Pétursdóttir, lektor í kynjafræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. „Frelsisbylgjur og mótbárur.“ |
11:30 – 12:20 |
Hádegisverður. |
12:20 – 14:40 |
|
14:40 – 15:00 |
Kaffi. |
15:00 – 15:30 |
Edda Björgvinsdóttir, leikkona og fyrirlesari. „Húmor og gleði í leik og starfi er dauðans alvara ... líka í jafnréttisbaráttu.“ |
15:30 – 16:30 |
Er Ísland best í heimi? Í pallborðsumræðum þingsins ræðir forystufólk úr stjórnmálum og frá vinnumarkaði sem og fulltrúar háskólasamfélags, stjórnsýslu og ungmenna um stöðu og þróun jafnréttismála. |
16:30 – 17:00 |
Samantekt og þingslit. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. |