Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Hreint loft – betri heilsa. Umfjöllun um loftgæði og heilsufar á Íslandi

Ritið afhent.
Ritið afhent.

Stýrihópur skilaði í dag Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, riti sem inniheldur úttekt á loftgæðum og lýðheilsu þeim tengdum. Efnt verður til málþings í næstu viku til að fylgja ritinu eftir.

Loftmengun er fylgifiskur aukins mannfjölda og þéttbýlismyndunar á jörðinni og er hættuleg heilsu og lífsgæðum, einkum þeirra sem þjást af sjúkdómum í öndunarfærum eða hjarta og æðum. Loftmengun dregur úr lífslíkum manna og eru börn sérstaklega viðkvæm, því mengað loft getur valdið öndunarfærasjúkdómum hjá börnum og haft varanleg áhrif á lungnaþroska þeirra.

Í ritinu, sem ber heitið Hreint loft – betri heilsa, er fjallað um helstu mengunarvalda lofts bæði inni og úti á Íslandi, magn þeirra, áhrif þeirra á heilsu, vöktun og aðgerðir til að stemma stigu við skaðsemi þeirra. Einnig eru settar fram tillögur til úrbóta og mælt með umhverfis- og heilsuvísum sem nota má til að fylgjast með loftmengun af ýmsu tagi og áhrifum hennar á heilsu.  Þetta er fyrsta heildarúttekt á loftgæðum á Íslandi og hafa höfundar lagt áherslu á að safna öllum tiltækum upplýsingum þar að lútandi. Gerð er m.a. grein fyrir uppruna, eiginleikum og áhrifum loftborinna efna á heilsu. Rakin eru ákvæði laga og reglugerða og alþjóðlegra samninga sem Ísland á aðild að. Þar sem niðurstöður mælinga liggja fyrir eru þær bornar saman við heilsuverndarmörk eða önnur viðmið.

Heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn árið 2010 en starfið var undir formennsku umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Auk fulltrúa ráðuneytanna tveggja sátu í stýrihópnum fulltrúar Embættis landlæknis,  Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, SÍBS og Umhverfisstofnunar.

Efnt verður til málþings miðvikudaginn 24. apríl, í aðdraganda dags umhverfisins, til að fylgja ritinu úr hlaði. Á málþinginu verður fjallað um áhrif loftgæða á heilsufar, loftgæði innandyra sem utan og hvað er til úrbóta. Í lok málþingsins verður pallborð þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum fundargesta. Málþingið verður haldið á Nauthóli í Öskjuhlíð milli kl. 10 og 12 og er öllum opið svo lengi sem húsrúm leyfir. Nánar má lesa um dagskrá málþingsins hér á vef ráðuneytisins.

Hreint loft – betri heilsa. Umfjöllun um loftgæði og heilsufar á Íslandi ásamt tillögum til úrbóta.

Dagskrá málþings um loftgæði og lýðheilsu.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum