Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2013 Innviðaráðuneytið

Niðurstöður könnunar um húsaleigubætur 2012

Húsin í bænum
Húsin í bænum

Námsmenn, öryrkjar og launafólk eru stærstu hópar þeirra sem eru á leigumarkaði og fá greiddar húsaleigubætur. Flestir sem fá húsaleigubætur eru einhleypir, konur eru í miklum meirihluta og einstæðar mæður stór hluti þess hóps. Þetta og fleira kemur fram í nýrri könnun um útgreiðslu húsaleigubóta sem unnin var fyrir samráðsnefnd um framkvæmd laga og reglugerða um húsaleigubætur.

Samráðsnefndin starfar á grundvelli 10. gr. reglugerðar um húsaleigubætur nr. 118/2003 og er skipuð af ráðherra. Hlutverk hennar er að fylgjast með framkvæmd laga og reglugerðar um húsaleigubætur.

Eftirfarandi er samantekt með helstu niðurstöðum könnunarinnar en skýrslan með könnuninni í heild er jafnframt aðgengileg hér.

Leigumarkaður

  • Meirihluti húsaleigubótaþega býr í tveggja til þriggja herbergja íbúðum.
  • Leiguverð fylgir fjölda herbergja, er ívið lægra í félagslegu leiguhúsnæði en á almennum markaði, og hærra á höfuðborgarsvæðinu en á lands­byggðinni.

Húsaleigubótaþegar

  • Um helmingur húsaleigubótaþega er á almennum leigumarkaði, fjórðungur býr í félagslegu leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga, en einnig er stór hópur sem býr á stúdentagörðum eða í öðru námsmannahúsnæði.
  • Um helmingur húsaleigubótaþega er yngri en 35 ára.
  • Námsfólk, öryrkjar og launafólk eru þrír stærstu hópar húsaleigu­bótaþega, en atvinnulausir og ellilífeyrisþegar eru einnig nokkuð stór hluti hópsins.
  • Allur þorri húsaleigubótaþega er einhleypur. Konur eru í miklum meirihluta og einstæðar mæður eru umtalsverður hluti þeirra.
  • Það eru vissar vísbendingar um að samsetning húsaleigubótaþegahópsins sé að breytast. Hlutfall námsfólks og fólks á yngsta aldursbilinu af nýjum umsækjendum er umtalsvert hærra en meðal þeirra sem þegar fá húsaleigu­bætur. Þetta á einnig við um sérstakar húsaleigubætur.Um helmingur einhleypra húsaleigubótaþega er með árstekjur undir tveimur milljónum króna, enda eru húsaleigubætur lágtekjumiðaðar.
  • Einhleypir foreldrar með þrjú börn eða fleiri búa að jafnaði við lakari kjör en aðrir húsaleigubótaþegar.

Sérstakar húsaleigubætur

  • Um 60% sveitarfélaga greiða ekki sérstakar húsaleigubætur. Þrátt fyrir það búa um 83% íbúa landsins í sveitarfélögum sem greiða slíkar bætur. Það helgast af því að minni sveitarfélögin eru síður líkleg til að greiða sérstakar húsaleigubætur.
  • Ekkert í gögnunum bendir til þess að það séu tengsl milli stærðar sveitarfélaga og fjárhæða sérstakra húsaleigubóta. Þá er ekki munur milli höfuðborgar­svæðis og landsbyggðar.
  • Hlutfall þeirra sem búa í félagslegu leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga er umtalsvert hærra meðal þeirra sem fá sérstakar húsaleigubætur en meðal húsaleigubótaþega almennt. Hins vegar er allur þorri nýrra umsækjenda um sérstakar húsaleigubætur á almennum leigumarkaði.
  • Stærstur hluti þeirra sem fá sérstakar húsaleigubætur er undir 35 ára aldri, en meðalaldur hópsins er þó hærri en húsaleigubótaþega almennt.
  • Öryrkjar eru rúmur þriðjungur þeirra sem fá sérstakar húsaleigubætur.

Fjárhæðir húsaleigubóta

  • Skipting þeirra fjármuna sem er varið í almennar og sérstakar húsaleigu­bætur endurspeglar samsetningu bótaþegahópsins. Rúmur helmingur þess fjármagns sem er varið í almennar húsaleigubætur fer til fólks á almennum leigumarkaði, rúmur fjórðungur til fólks í félagslegu leigu­húsnæði á vegum sveitarfélaga og um 13% til fólks sem býr á stúdentagörðum eða í öðru námsmannahúsnæði.
  • Meðalhúsaleigubætur þeirra sem eru á almennum leigumarkaði eru ívið hærri en bætur fólks sem býr í félagslegu leiguhúsnæði. Það á við um bæði almennar og sérstakar húsaleigubætur.
  • Ætla má að lágtekjumiðun húsaleigubóta valdi því að stór hluti húsaleigu­bótaþega fái lágar bætur sem hafi hverfandi áhrif á húsnæðiskostnað þeirra. Þá benda gögnin til þess að stór hluti leigjenda fái ekki húsaleigubætur.
Skýrsla um útgreiðslu húsaleigubóta. Könnun unnin fyrir samráðsnefnd um framkvæmd laga og reglugerða um húsaleigubætur

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum