Hoppa yfir valmynd
28. október 2019 Innviðaráðuneytið

Málþing um börn og samgöngur

Málþing um börn og samgöngur - myndHaraldur Jónasson / Hari

Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember (ath. ný dagsetning) frá kl. 12:30 til 16:30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi (Ráðhúsi Garðabæjar).

Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Dagskrá

12:30 – Málþing sett

  • Ávörp
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
    Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs

  • Umferðaröryggi - okkar mál!  
    Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur

  • Hvernig við sjáum umferðaröryggið.
    Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
  • Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu
    Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði

  • „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
    Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni

  • Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé

14:20 – Kaffihlé

  • Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
    Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur

  • Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
    Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps

  • Öryggi barna í Reykjavík
    Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon

  • Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé

  • Gamanmál

16:30 – Málþingi lýkur

  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum