Hoppa yfir valmynd
18. júní 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum á Íslandi

Út er komin skýrsla um stöðu náms- og starfsráðsgjafar í grunnskólum hér á landi sem byggir á niðurstöðum rannsóknar sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerði fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Þar voru m.a. skoðuð atriði eins og fjöldi náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum, fjöldi stöðugilda, menntun þeirra sem starfa við náms- og starfsráðgjöf, hlutfall nemenda sem njóta ráðgjafar, hvers konar þjónusta er veitt og hvaða aldurshópum og þjónusta við nemendur af erlendum uppruna. Markmið verkefnisins var því að gera úttekt á fyrirkomulagi og gæðum náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum með spurningakönnun og vettvangsheimsóknum og koma með tillögur til úrbóta.

Skýrsla: Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum á Íslandi 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum