Hoppa yfir valmynd
25. júní 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Þrjátíu umsækjendur um embætti skrifstofustjóra loftslagsmála

Sveifluháls - myndHugi Ólafsson

Alls eru 30 umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, en ráðuneytið auglýsti starfið laust til umsóknar 6. júní síðastliðinn.

Umsækjendur eru:

  • Ari Arnalds Jónasson, verkfræðingur
  • Azra Šehić, sérfræðingur í kynja- og mannréttindamálum
  • Ásdís Ólöf Gestsdóttir
  • Björgvin Harri Bjarnason, verkefnastjóri MPM
  • Björn Barkarson, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra
  • Dagmar Sigurðardóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs
  • Davíð Freyr Jónsson, orku- og umhverfistæknifræðingur
  • Elísabet Pálmadóttir, framkvæmdastjóri
  • Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun
  • Eva Margrét Ævarsdóttir, lögmaður
  • Eyjólfur Eyfells, verkefnastjóri
  • Finnur Sveinsson, ráðgjafi
  • Gunnlaug Helga Einarsdóttir, fv. sviðsstjóri
  • Halla S. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
  • Hans Benjamínsson, MBA
  • Helga Barðadóttir, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra
  • Hrafnhildur Bragadóttir, sviðsstjóri
  • Hrönn Hrafnsdóttir, sérfræðingur
  • Ingi B. Poulsen, lögfræðingur
  • Ingunn Gunnarsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði
  • Kári Jóhannsson, ráðgjafi
  • Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands
  • Lilja Guðríður Karlsdóttir, verkefnastjóri Borgarlínu
  • Selja Ósk Snorradóttir, umhverfisfræðingur
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB
  • Sigurður Loftur Thorlacius, umhverfisverkfræðingur
  • Svavar Halldórsson, ráðgjafi
  • Sverrir Jensson, veðurfræðingur
  • Valdimar Björnsson, fjármálastjóri
  • Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti

Sérstök hæfnisnefnd metur hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra sem ræður í embættið. Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Nefndina skipa Magnús Jóhannesson fv. ráðuneytisstjóri, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor og Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðs- og gæðastjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Reglur nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum