Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2020 Forsætisráðuneytið

Frumvarp til breytinga á II. kafla stjórnarskrárinnar um forseta og framkvæmdavald í samráðsgátt

Drög að frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Með því eru gerðar breytingar á II. kafla stjórnarskrárinnar þar sem fjallað er um forseta Íslands, ríkisstjórn, verkefni framkvæmdarvalds o.fl. og er almenningi gefinn kostur á að senda inn umsögn við efni ákvæðisins.

Frumvarpið verður til umsagnar í samráðsgáttinni til 22. júlí nk.

Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þar hafa ýmis ákvæði komið til skoðunar. Vinna við þetta frumvarp sem hér er birt til samráðs er nú komin það langt áleiðis að rétt er að leita álits og athugasemda frá almenningi um efni þess í samráðsgátt stjórnvalda. Áréttað er að birting í samráðsgátt á þessu stigi felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu formanna flokkanna til að standa að framlagningu frumvarpanna í þessari mynd á Alþingi.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum