Hoppa yfir valmynd
20. september 2021 Innviðaráðuneytið

Reglugerð sett um safnskip sem rekin eru í menningarlegum tilgangi

Varðskipið Óðinn - mynd

Ný reglugerð um safnskip, sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirritaði, hefur tekið gildi. Með reglugerðinni eru settar sérreglur um skip, sem eru 50 ára og eldri og rekin í menningarlegum tilgangi. Dæmi um slík safnskip er varðskipið Óðinn sem liggur við bryggju við Grandagarð og er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík.

Reglugerðin var sett með vísan í skipalög (nr. 66/2001) sem heimilar ráðherra að undanþiggja safnskip frá tilteknum kröfum laga og reglna með vísan til menningarlegs gildis þess.

Í reglugerðinni er heimilað að safnskip sé búið líkt og lög mæltu þegar skipið var smíðað og tekið til rekstrar með vissum takmörkunum, s.s. varðandi björgunarbúnað, sem uppfylla þarf nútímakröfur.

Reglugerðin var undirbúin í samvinnu við Samgöngustofu sem mun halda utan um skráningu safnskipa. Drög að reglugerðinni voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda frá 16. júlí til 9. ágúst 2021.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum