Hoppa yfir valmynd
22. september 2022 Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Íslenskt hugvit í brennidepli á ráðstefnu um loftslagsmál í Washington DC

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í Washington DC í gær.  - myndUtanríkisráðuneytið

Íslenskt hugvit á sviði grænna lausna var í brennidepli á ráðstefnu um loftslagsmál og sjálfbæra orkunýtingu sem fram fór í Washington DC í gær. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra voru á meðal þeirra sem tóku þátt í viðburðinum.

Markmið ráðstefnunnar Our Climate Future: US-Iceland Clean Energy Summit var að vekja athygli á íslensku hugviti og grænum lausnum sem geta nýst í baráttunni gegn loftslagsvánni á heimsvísu og skapa vettvang til að deila þekkingu og reynslu. Auk forsætisráðherra og utanríkisráðherra tóku þátt í ráðstefnunni lykilaðilar á sviði orkumála og grænna lausna á Íslandi og frá Bandaríkjunum. Sendiráð Íslands í Washington, Grænvangur og hugveitan Atlantic Council Global Energy Center stóðu fyrir viðburðinum. 

Ráðstefnan hófst á lokuðum morgunverðarfundi sem forsætisráðherra leiddi þar sem hlutverk og mikilvægi valdeflingar kvenna í orkuskiptum og baráttunni við loftslagsbreytingar voru í brennidepli. Á fundinum komu saman sérfræðingar á ýmsum sviðum, svo sem þróunarsamvinnu, jafnréttis- og orkumála.

Forsætisráðherra tók þátt í umræðum við upphaf ráðstefnunnar. Þar ræddi hún m.a. mikilvægi þess að stjórnvöld og atvinnulífið vinni saman að aðgerðum til að sporna gegn loftslagsbreytingum.

„Þar þarf að huga að aðgerðum sem nýtast öllum hópum. Loftslagsbreytingar bitna með ólíkum hætti á ólíkum hópum. Við þurfum sérstaklega að huga að stöðu viðkvæmra hópa, kvenna og barna. Grænu umskiptin verða að vera réttlát umskipti,“ sagði forsætisráðherra.

Utanríkisráðherra flutti ávarp í umræðum orkuöryggi og loftslagsbreytingar þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu þegar kæmi að því að sporna við hlýnun jarðar.

„Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir eru hvorki af völdum yngri kynslóða né fátækari þjóða heimsins. Engu að síður verður gjörvallt mannkyn að taka höndum saman um að leysa þær. Hvort sem okkur líkar betur eða verr og hvort sem við eigum það skilið eða ekki kemur það í hlut leiðtoga okkar tíma og framtíðarinnar að takast á við þennan sameiginlega veruleika,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir í ávarpinu.

Eftir að ráðstefnunni lauk hélt sendinefnd úr íslenska orkugeiranum til Pittsburgh til að sækja orkumálaráðstefnuna Global Clean Energy Action Forum og eiga fundi með fulltrúum orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna.  

Í gærmorgun átti utanríkisráðherra fund með þingkonunni Chellie Pingree frá Maine, en hún lagði fyrr á þessu ári fram svokallað Íslandsfrumvarp (Iceland Act) í fulltrúadeild þingsins. Markmið Íslandsfrumvarpsins er að auðvelda íslenskum fjárfestum að fara milli Íslands og Bandaríkjanna í því skyni að eiga viðskipti þar í landi.

 

  • Íslenskt hugvit í brennidepli á ráðstefnu um loftslagsmál í Washington DC - mynd úr myndasafni númer 1
  • Íslenskt hugvit í brennidepli á ráðstefnu um loftslagsmál í Washington DC - mynd úr myndasafni númer 2
  • Þórdís Kolbrún og Chellie Pingree - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum