Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra skipar verkefnisstjórn loftslagsaðgerða

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn loftslagsaðgerða í samræmi við nýsetta reglugerð nr. 786/2024. Verkefnisstjórninni er falið að fylgja eftir aðgerðum í aðgerðaáætlun loftslagsmála, sjá um birtingu árangursmælikvarða aðgerðanna og að fylgjast með áhrifum aðgerða á losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig ber verkefnisstjórnin ábyrgð á gerð og eftirfylgni aðlögunaráætlunar um aðlögun íslensks samfélags að loftslagsbreytingum.

Verkefnisstjórnin á að skila ráðherra árlega skýrslu um framgang aðgerðaáætlunarinnar og hvort hún sé í samræmi við áætlanir, auk þess sem skýrslan á einnig fjalla um framgang aðlögunaraðgerða á a.m.k. tveggja ára fresti.

Verkefnisstjórnina skipa:

  • Halla Sigrún Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, formaður,
  • Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur, varafulltrúi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
  • Tryggvi Haraldsson, sérfræðingur, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.
  • Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri og Sigurður Páll Ólafsson, skrifstofustjóri, varafulltrúi, frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi sjálfbærrar þróunar, og Ásta Bjarnadóttir, sérfræðingur, varafulltrúi, frá forsætisráðuneyti.
  • Kristrún Friðriksdóttir, ritari ráðuneytisstjóra, frá dómsmálaráðuneyti.
  • Elvar Knútur Valsson, sérfræðingur frá háskóla-, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
  • Sigríður Jakobínudóttir, sérfræðingur frá heilbrigðisráðuneyti.
  • Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri, og Valgerður B. Eggertsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra, varafulltrúi, frá innviðaráðuneyti.
  • Björn Helgi Barkarson, skrifstofustjóri, og Rafn Helgason, sérfræðingur, varafulltrúi, frá matvælaráðuneyti.
  • Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri og Sunna Þórðardóttir, sérfræðingur, varafulltrúi, frá menningar- og viðskiptaráðuneyti.
  • Hafþór Einarsson, skrifstofustjóri, og Ingibjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur, varafulltrúi, frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
  • Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri og Þorvarður Atli Þórsson, deildarstjóri, varafulltrúi, frá utanríkisráðuneyti.
  • Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri og Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur, varafulltrúi, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

 

Með verkefnisstjórninni starfa sérfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Umhverfisstofnun og Veðurstofu Íslands.

Skipunartími verkefnisstjórnarinnar er til 4. júlí 2027.

 

 

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta