Réttarvörslugáttin hreppti Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
Réttarvörslugáttin er einn af verðlaunahöfum Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2025, sem veitt eru af Fjársýslunni fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun.
Verðlaunin hlýtur Réttarvörslugáttin fyrir stafvæðingu réttarvörslukerfisins og bætt samstarf milli stofnana innan dómskerfisins.
Metnaðarfullt samstarfsverkefni
„Réttarvörslugáttin gengur út á að koma á nýrri og betri umgjörð fyrir samskipti aðila í íslenska réttarvörslukerfinu. Verkefnið er metnaðarfullt samstarfsverkefni dómsmálaráðuneytisins, lögreglunnar, dómstóla, ákæruvalds, Fangelsismálastofnunar, Lögmannafélags Íslands, Stafræns Íslands og hugbúnaðarfyrirtækisins Kolibri. Aðkoma allra þessara aðila hefur verið lykillinn að árangrinum og þakka ég þeim öllum fyrir frábært samstarf undanfarin 6 ár en undirbúningur að verkefninu hófst árið 2019 og hefur áherslan til þessa verið á að koma á stafrænum í ferlum í sakamálum og rafrænar birtingar á island.is,“ segir Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Réttarvörslugáttarinnar hjá dómsmálaráðuneytinu.
Guðlaug Dröfn segir verkefnið marka tímamót en það stuðli að styttri málsmeðferðartíma, lægri málskostnaði, minna kolefnisspori og auknu gagnsæi. „Megináherslan er að flytja gögn en ekki fólk. Það er mikill heiður fyrir okkur öll að hljóta þessi verðlaun fyrir samstarf sem hefur eflt þjónustu, einfaldað ferla og skapað ávinning fyrir samfélagið.“
Ljósi varpað á fjölbreytileika nýsköpunar
Nýsköpunarverðlaunin eru veitt af Fjársýslunni til að varpa ljósi á öflugt umbótastarf og nýsköpun sem bætir gæði og skilvirkni opinberrar þjónustu. Verðlaunahafar ársins 2025 eru auk gáttarinnar Benedikt Geir Jóhannesson, Skatturinn, Hafnarfjarðarbær og Bílastæðasjóður.
Verðlaunin endurspegla breidd nýsköpunar í opinbera geiranum , frá tækniinnleiðingu og gagnadrifinni stefnumótun til notendamiðaðrar þjónustu og lausna sem nýtast almenningi.