Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2006 Innviðaráðuneytið

Skýrsla um ferðavenjur erlendra ferðamanna

Komin er út skýrslan Erlendir ferðamenn á Íslandi ? þróun á ferðavenjum og áhrif á samgöngukerfi. Skýrsluna vann Bjarni Reynarsson landfræðingur og leiðsögumaður hjá Land-ráð sf. fyrir samgönguráð og er tilgangur hennar meðal annars að kanna áhrifasvið höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða.


Í skýrslunni eru dregnar saman niðurstöður úr könnunum og tölfræðisöfnun Ferðamálastofu og fleiri aðila í ferðaþjónustu um ferðavenjur erlendra gesta hérlendis. Kemur í ljós að fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið mun hraðari en til dæmis fjölgun landsmanna og vöxtur bílaumferðar síðasta áratuginn. Mest hefur fjölgað erlendum ferðamönnum sem koma hingað með skemmtiferðaskipum og ferðast þeir einkum um suðvesturhluta landsins og farþegar skipa sem hafa viðdvöl á Akureyri ferðast einkum um Mývatnssveit.

Meðal niðurstaðna skýrsluhöfundar er að mikilvægustu atriðin í samgöngum séu umbætur á vegakerfinu bæði á og umhverfis hálendið svo og umhverfis höfuðborgarsvæðið. Segir að víða megi bæta merkingar á ensku og talið er brýnt að upplýsingar um færð að vetrarlagi og ástand vega séu aðgengilegar á ensku.

Skýrslan er hluti af stærra verkefni sem unnið er fyrir samgönguráð. Í haust koma síðan út tvær kannanir á ferðavenjum, önnur um innanlandsflug og í hinni eru birtar niðurstöður úr könnun á ferðavenjum frá 16 landsvæðum til höfuðborgarsvæðisins.



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum