Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2012 Innviðaráðuneytið

Norræn skýrsla um tölvuský er komin út

Tölvuský (cloud-computing)
Tölvuský (cloud-computing)

Út er komin skýrsla um tölvuský í opinberum í opinberum rekstri. Yfirskrift skýrslunnar er „Nordic Public Sector Cloud Computing – A discussion paper“. Vinnuhópur á vegum norrænu ráðherranefndarinnar hefur fjallað um tölvuský og samdi við ráðgjafafyrirtæki um að stýra gerð skýrslu um tölvuský á Norðurlöndunum.  IT-og telestyrelsen í Danmörku stýrði framkvæmd verkefnisins fyrir hönd vinnuhópsins. Í skýrslunni er m.a. fjallað um kosti tölvuskýja fyrir opinberar stofnanir og hvernig sé hægt nýta þau í því umhverfi sem opinberar stofnanir búa við. Fyrirhugað er að kynna skýrsluna hér á landi og ræða um norrænt samstarf á þessu sviði á fundi í mars 2012.

Upplýsingar um norrænt samstarf um tölvuský: www.norden.org/da/aktuelt/nyheder/nordisk-samarbejde-om-cloud-computing

Skýrslan í heild: /www.norden.org/da/publikationer/publikationer/2011-566

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum