Hoppa yfir valmynd
3. september 2008 Innviðaráðuneytið

Lokaskýrsla um losunarheimilidir í flugi

Komin er út lokaskýrsla um losunarheimildir á koltvísýringi í flugi sem stýrihópur samgönguráðherra um málið hefur sent frá sér. Segir meðal annars í niðurstöðunum að íslensk stjórnvöld þurfi að fylgjast með málinu innan ESB og koma íslenskri sérstöðu á framfæri þar.
Sviffluga
Sviffluga

Markmiðið með setningu kvóta á losun koltvísýrings í flugi er einkum að draga úr losun hans en einnig að flugumferð á eins til tveggja klukkustunda leiðum færist yfir á aðrar og umhverfisvænni samgöngugreinar svo sem lestir og áætlunarbíla. Sérstaða Íslands hvað þetta varðar er augljós.

Í ábendingum stýrihópsins til stjórnvalda segir meðal annars að það sé stefna íslenskra stjórnvalda að Ísland leggi sitt að mörkum til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, en hópurinn bendir á að þátttaka flugs í viðskiptakerfinu að öðru óbreyttu geti raskað samkeppnisstöðu Íslands og þrengt rekstrarsvigrúm íslenskra flugrekenda samanborið við aðra í Evrópu. Með fullri þátttöku verði framlag Íslands til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda hlutfallslega meira en annrra ríkja. Ástæðan sé fyrst og fremst sérstaða Íslands vegna legu landsins og vegna mikillar hlutdeildar flugstarfseminnar í þjóðarframleiðslu landsmanna.

Síðan segir stýrihópurinn:

,,Erfitt er að gera beina tillögu um breytingar á kerfinu eins og það liggur nú fyrir til að tryggja jöfnun aðstöðu öðru vísi en að fara fram á takmarkaðar undanþágur frá þátttöku í kerfinu eða rýmri losunarheimildir fyrir Ísland umfram aðra. Eðlilegt er að reynt verði að ná fram niðurstöðu sem taki mið af því að framlag Íslands verði sanngjarnt á við aðrar þjóðir Evrópu og sé í samræmi við sérstakar aðstæður í flugstarfsemi á Íslandi.”



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum