Hoppa yfir valmynd
26. október 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Drög að nýrri fjarskiptaáætlun til umsagnar

Innanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja nýja fjarskiptaáætlun fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi nú í haust. Verkefnið var unnið í innanríkisráðuneytinu með aðkomu Póst- og fjarskiptastofnunar auk vinnuhópa úr stjórnkerfinu í umsjón verkefnisstjórnar um endurskoðun fjarskiptaáætlunar. 

Hér á vefnum er að finna drög að þingsályktun um tólf ára fjarskiptaáætlun og drög að fjögurra ára framkvæmdaáætlun. Fjarskiptaáætlun mun ná til sama tímabils og samgönguáætlun, þ.e. tólf ára stefnumótunar auk fjögurra ára framkvæmdaáætlunar. Efnistökum áætlunarinnar er ætlað að vera víðtækari en í fyrri fjarskiptaáætlun sem gilti fyrir árin 2005-2010 og er meðal annars fjallað um póstmál, rafræn samskipti, stafræna miðlun og samspil allra þessara málaflokka.

Grundvallarmarkmið fjarskiptaáætlunar verða hliðstæð markmiðum samgönguáætlunar sem ásamt samræmdum tímasetningum greiða  fyrir samþættingu við hana. Þessi markmið eru.

  • Aðgengileg og greið fjarskipti
  • Hagkvæm og skilvirk fjarskipti
  • Umhverfisvæn fjarskipti
  • Örugg fjarskipti.

Innanríkisráðuneytið auglýsir hér með þingsályktun um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022 og þingsályktun (framkvæmdaáætlun) til fjögurra ára frá 2011-2014. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. nóvember 2011. Athugasemdir skal senda bréfleiðis á innanríkisráðuneytið, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið [email protected].

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum