Mál nr. 45/2025 Úrskurður 23. maí 2025
Mál nr. 45/2025 Eiginnafn: Óskir
Hinn 23. maí 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2025 en erindið barst nefndinni 12. maí 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Óskir uppfyllir skilyrði nr. eitt, þrjú og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Óska, er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Hér reynir aftur á móti á skilyrði númer tvö. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir einnig að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Nefndin lítur svo á að eiginnafnið Óskir sé fleirtala hins rótgróna eiginnafns Ósk og því ekki hægt að samþykkja það enda ekki hefð fyrir því að mynda ný nöfn sem fleirtölu á rótgrónum nöfnum.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Óskir er hafnað.