Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 49/2025 Úrskurður 24. júní 2025

Mál nr. 49/2025                    Millinafn:       Hó

Hinn 24. júní 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 8/2025 en erindið barst nefndinni 20. júní 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 2. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  2. Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  3. Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Hó er dregið af íslenskum orðstofni, , en nefndin telur að nafn sem leitt er af upphrópun eins og hó, hæ, hí, ha og jæja geti orðið nafnbera til ama.

Hafa ber í huga að samþykki mannanafnanefnd millinafn, færist það á skrá yfir slík nöfn. Það kann að leiða til þess að börn geti hlotið það, en mikilvægir hagsmunir barna eru að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi sbr. greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn.

Bent skal á að fullveðja einstaklingur sem hefur í hyggju að kjósa sér nafn af einhverjum ástæðum sem að öllu jöfnu kynni að valda barni sem nafnhafa ama, getur í daglegu lífi sínu viðhaft það nafn þótt það fái ekki opinbera skráningu hjá stjórnvöldum og færist ekki á mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd hlutast ekki til um gælunöfn, listræn nöfn eða önnur þau nöfn eða nefni sem kunna að tíðkast í daglegu lífi utan opinberrar skráningar.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Hó er hafnað. 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta