Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 20/2023 Úrskurður 9. mars 2023

Mál nr. 20/2023                    Millinafn:       Kims

 

Hinn 9. mars 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 20/2023 en erindið barst nefndinni 13. febrúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

 

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Kims er ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir því ekki 6. grein fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Kims er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum