Mál nr. 46/2025 Úrskurður 23. maí 2025
Mál nr. 46/2025 Eiginnafn: Míkah (kvk.)
Hinn 23. maí 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 46/2025 en erindið barst nefndinni 12. maí 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Míkah tekur eignarfallsendingu, Míkuh, og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera að ama. Hér reynir aftur á móti á skilyrði númer þrjú þar sem nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan -ah kemur ekki fyrir í ósamsettum orðum í íslensku. Er því aðeins hægt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir umbeðnum rithætti þessa.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn einstaklingur nafnið Míkah í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Þá kemur nafnið ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Nafnið er úr hebresku og notað með rithættinum Mikah víða um heim. Telur mannanafnanefnd því hefð fyrir rithætti nafnsins og að með sérhljóðabroddi yfir í sé nafnið að nokkru leyti aðlagað að íslenskum ritreglum. Er því unnt að samþykkja ritháttinn á grundvelli 4. gr. reglnanna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Míkah (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.