Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 76/2020 Úrskurður 21. september 2020

Mál nr. 76/2020                     Eiginnafn:      Sofia (kvk.)

 

 

Hinn 21. september 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 76/2020 en erindið barst nefndinni 18. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Ritháttur nafnsins Sofia getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem a er ekki ritað beint á eftir i í ósamsettum orðum í íslensku. Þess vegna er einungis hægt að fallast á ritháttinn Sofia ef hann telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera a.m.k. 15 konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Sofia. Sú elsta er fædd 1962. Nafnið kemur einnig fyrir í a.m.k. tveimur manntölum frá 1703–1920. Þess vegna telst ritmyndin Sofia hafa unnið sér hefð í íslensku.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sofia (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnanna Sofía (kvk.), Soffía (kvk.) og Sophia (kvk).


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum