Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 78/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024

Mál nr. 78/2024                    Eiginnafn:     Salvarr (kk.)

Hinn 19. ágúst 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 78/2024 en erindið barst nefndinni 5. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Sá ritháttur sá, að rita nafn með tveimur errum (-err) í endingarlið, fer gegn almennum ritreglum íslensks máls, sbr. 3. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 og er andstæður íslenskri hljóðþróun. Það athugast að þó svo að ending þessi hafi verið eðlilegur ritháttur á ritunartíma fornsagna, var hún aflögð á 14. öld. Aðeins er unnt að samþykkja nafn sem ekki er skrifað í samræmi við almennar ritreglur ef hefð telst hafa myndast fyrir rithætti þess.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Nafnið Salvar er á mannanafnaskrá. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn  nafnið Salvarr og það kemur heldur ekki fyrir í manntölum. Í þeim tilfellum þar sem mannanafnanefnd hefur samþykkt nöfn sem rituð eruð með hinu forna rihætti -rr í nefnifalli er annars vegar um að ræða nöfn sem koma fyrir í fornu máli og hins vegar nöfn sem hafa verið borin af mönnum í fjölskyldu umsækjanda. Á hvorugt við hér. Er ekki hefð fyrir þessum rithætti nafnsins og því verður að synja beiðni þessari.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Salvarr (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta